Er ekki kominn tími á blogg?
Erum einmitt að fara á eftir að sækja barnavagninn og rúmið sem við keyptum um helgina. Stebbi er svo spenntur að ná í dótið og setja vagninn saman og sjá hann, hann er alveg að deyja úr spenningi
En í þessum töluðu orðum þá situr Stebbi inni í stofu og heldur í hendina á miðaldra danskri konu
Mér finnst aftur á móti mjög erfitt að skilja útlendingana í skólanum. Þau bera orðin svo vitlaust fram. Það er auðvitað mun auðveldara fyrir mig að læra dönskuna en fólk frá Filippseyjum, Tælandi, Brasilíu, Burma, Úkraínu og Ungverjalandi svo dæmi séu tekin.
Við fórum um helgina að heimsækja Ástu, Þröst og krakkana og Jórunn og Bjarni komu líka þangað. Það var mjög gaman að hitta þau og við ætlum að borða öll saman um þar næstu helgi en þá verða Ingó og Inga hjá þeim í heimsókn frá Íslandi. Sem minnir mig á það að ég gleymdi að telja Ingó, Ingu og Jórunni og Bjarna upp í gestalistanum fyrir síðasta ár, en þau komu í heimsókn til okkar í september.
Það var roslega gaman að sjá þau öll og sérstaklega litla frænda sem fæddist á aðfangadag. Við Stebbi fengum auðvitað að máta litla barnið svona til að hita upp
Stebbi heyrði í Bigga frænda sínum í gær en barnið er ekki ennþá fætt hjá þeim. Í dag er Ingibjörg komin 11 daga fram yfir en hún var skrifuð inn 12. janúar. Biggi bjóst nú reyndar við því að þetta færi að koma svo við bíðum bara spennt eftir að heyra frá honum.
Vá nú er litla krílið okkar á fulllu hérna í maganum á mér. Ætli það geti ekki sofið fyrir lyklaborðspikkinu í mömmu en Stebbi segir alltaf að það sé eins og ég sé að brjóta lyklaborðið þegar ég pikka
Það eru bara þrjár vikur síðan við komum frá Englandi en mér finnst vera heil eilíf síðan við vorum þar. Ég fékk þessa sígildu spurningu frá Viktori um það hvernig barnið hefði komist inn í magann á mér, hóst hóst. Ég sagði honum að spyrja mömmu sína, þetta væri flókið mál og hún myndi útskýra þetta fyrir honum. Sem betur fer þá sættist hann alveg á þetta svar og ræddi þetta ekki meir
Annars ætlaði ég nú að segja ykkur aðeins frá honum Magga frænda. Ég er svo stolt af honum. Hann fór í þriggja vikna tónleikaferðalag með Skid Row í nóvember. Skid Row er heimsfræg hljómsveit sem var vinsæl í kringum 1990, svona fyrir ykkur sem ekki þekkið til. En þetta kom þannig til að hann hefur verið að róta fyrir íslenska hljómsveit sem heitir Sign, sem er mjög vinsæl rokkhljómsveit. Þeir hafa verið að spila erlendis og Maggi hefur tvisvar eða þrisvar ferðast með þeim um Bretland og verið að róta fyrir þá. Svo var Sign að hita upp fyrir Skid Row á tónleikaferðalagi um Bretland í nóvember og Maggi fór með Sign sem rótari. Hann kynntist strákunum í Skid Row og sagði að þeir væru alveg frábærir. Þeir hrósuðu honum fyrir vel unnin störf og sögðust alveg mæla með honum sem rótara. Ég held að hann sé meira segja ennþá í sambandi við trommarann þeirra. Algjör gaur hann Maggi frændi, hann er svo mikill rokkari. Hann er einmitt í námi í Bretlandi til að læra að vera hljóðmaður. Þetta er það skemmtilegasta sem hann gerir í lífinu, að hræra í tónlist.
Ohh my god, og svo er Heath Ledger dáinn
En núna er sjúkraþjálfarinn farinn og við ætlum að drífa okkur til Kolding að ná í barnadótið okkar
Gleđilegt ár!
Já, þá er ansi viðburðaríku ári lokið hjá okkur Stebba og annað mjög viðburðaríkt að byrja. Það er ekki hægt að segja að við höfum setið auðum höndum á árinu 2007, best að ég setji inn smá klausu um það til að rifja upp.
1. Janúar - Fluttum út úr íbúðinni okkar á Íslandi sem við vorum búin að selja.
2. Apríl - Fórum í ferðalag til Edinborgar.
3. Maí - Fluttum til Danmerkur og sigldum með Norrænu sem átti viðkomu í Færeyjum og Noregi. Ferðalagið út af flutningnum tók 10 daga en við stoppuðum norðan heiða hjá mömmu og pabba í 3 daga áður en við keyrðum austur, gistum svo hjá Víði bróður Stebba eina nótt á Egilsstöðum daginn fyrir brottför og svo gistum við í 3 nætur hjá Jóa og Unni í Álaborg áður en við fengum íbúðina okkar í Danmörku.
4. Maí - Fengum Magga og Emil frændur mína í heimsókn í eina viku.
5. Maí/Júní - Fórum í þriggja vikna ferðalag niður Evrópu. Keyrðum um Þýskaland, Holland, Belgíu, Frakkland og Lúxemborg.
6. Júní - Bjuggum til eitt stykki barn í Frakklandi.
7. Júní - Fengum Áslaugu systir Stebba og hennar fjölskyldu í heimsókn.
8. Júní - Linda systir, Þór og Urður komu í heimsókn.
9. Júlí - Fórum í helgarferð til Álaborgar að heimsækja Jóa og Unni.
10. Júlí - Tengdó komu og voru í 2 vikur hjá okkur.
11. Ágúst - Fórum til Íslands í 3 vikur.
12. Ágúst - Fengum mömmu og pabba í heimsókn í 10 daga.
13. September - Fengum Ólöfu og Heiðrúnu frænkur Stebba í heimsókn ásamt Tryggva.
14. September - Fórum til Íslands í afmæli hjá Kraftvélum.
15. Október - Bjössi og Kristín komu í heimsókn.
16. Nóvember - Inga Dís og Pétur komu í heimsókn.
17. Desember - Fórum til Íslands á jólahlaðborð hjá Kraftvélum.
18. Desember - Fórum til Bretlands í 10 daga til Þorgerðar og fjölskyldu og eyddum jólunum og áramótunum með þeim.
Þá held ég að þetta sé nú bara upp talið. Og auðvitað var keyrt um Danmörku þvera og endilanga þegar það komu gestir í heimsókn og ég tala nú ekki um allar ferðirnar sem við erum búin að fara til Þýskalands. Ekki má svo gleyma öðrum heimsóknargestum, eins og t.d. Sigurjóni, Hrannari, Axel, Jóa og Unni með krakkaskarann og fleiri. Svo var auðvitað mikill undirbúningur fyrr á árinu vegna flutninganna til Danmerkur. Já, við erum sko búin að hafa ansi mikið að gera síðasta árið og verður því ári seint gleymt.
Árið 2008 verður sko ekki síður viðburðaríkt en nú taka bara við bleyjuskipti og andvökunætur í stað ferðalaga. Við hlökkum svo til að fá litla krílið í heiminn að við erum alveg að deyja. Við misstum okkur aðeins í barnafatakaupum í Nottingham og keyptum fullt af fötum á barnið. Það sem stendur þó sennilega upp úr eru samfellurnar sem Stebbi keypti í gömlu Virgin. Hann keypti 3 svartar samfellur og er ein með Motörhead logo-i, ein með Guns´N Roses logo-i og ein með Led Zeppelin logo-i. Þær eru ekkert smá flottar. Svo valdi hann rosa flotta úlpu í felulitunum á barnið. Það getur reyndar ekki notað hana strax. Þetta verður nú meira rokkarabarnið
Jólin hjá okkur voru bara ansi fín. Gerðum lítið annað en að borða og sofa og vorum í góðu yfirlæti hjá Þorgerði sem var búin að baka allan fjandann og búa til ís og rauðkál fyrir jólin. Borðuðum hamborgahrygg á aðfangadag, hangikjöt á jóladag og kjúklinga á gamlárskvöld. Ætluðum að hafa kalkún á gamlárs en hann var uppseldur alls staðar. Vorum svo með heitt súkkulaði, kökur, brauð, osta og pönnukökur á annan í jólum en vinafólk Þorgerðar og Magga komu þá í heimsókn.
Það var reyndar einn dökkur punktur á jólunum. Stebbi, Maggi og Þorgerður fóru niður í bæ til að kaupa myndavél í jólagjöf handa Magga yngri og þegar þau voru búin að kaupa hana þurftu þau að skreppa í einhverja aðra búð. Á meðan var brotist inn í bílinn og myndavélinni stolið. Lokið á hanskahólfinu var líka eyðilagt og svo læsingin á bílstjórahurðinni. Aumingja Maggi fékk enga myndavél
En annars gengu jólin bara ágætlega fyrir utan þetta leiðindaatvit, nokkur brunasár, stíflað klósett, kalkúnaleysi og annað smotterí sem uppá kom.
Sprengdum upp örfáar og ómerkilegar rakettur en ekki virtist auðvelt að nálgast almennilegar rakettur þarna í Nottingham. Við sáum engan í nágrenninu sprengja upp en heyrðum samt í fullt af rakettum og sáum nokkrar þeirra. Sprengingarnar stóðu yfir í nokkrar mínútur og svo var bara allt búið. Það var eins og það hefði verið slökkt á öllum sprengingum, skrítið........bara allt búið. Þeir eru sko ekki að missa sig í þessu þarna í Bretlandi eins og á Íslandi.
Ég ætla svo að setja inn myndir frá Nottingham fljótlega.
JÓLABLOGG
Vil samt byrja á því að vekja athygli á myndunum sem ég var að setja inn á síðuna. Við tókum þessar myndir um daginn en veðrið var mjög svo undarlegt hérna í 2 eða 3 daga. Svartaþoka svo við sáum ekki í næsta hús við okkur á stundum og kuldinn rétt undir frostmarki. Það snjóaði ekkert en það er svo mikill raki hérna að það var frost yfir öllu. Það var ótrúlega magnað að sjá þetta og sérstaklega frosna köngulóarvefinn. Já............mér finnst náttúrulega bara óþolandi að það séu ennþá köngulær að skríða um í svefnherberginu mínu í desember, rétt fyrir jól. Ohhh ég hata þessi kvikindi
Ég hef haft svo mikið að gera síðan í nóvember að ég hef ekki haft tíma í blogg. Er líka farin að verða svolítið þreytt og fá bakverki út af óléttunni svo ég hef ekki haft mikla orku í blogg
Við fórum til Íslands í alveg óvænta ferð í byrjun desember. Okkur var boðið á jólahlaðborð hjá Kraftvélum og við fengum boðið á þriðjudegi og fórum til Íslands á föstudegi. Við stoppuðum því miður bara í tvo daga, en það var frábært að koma til landsins og sjá snjó (þann eina sem hefur víst komið í desember heima) og fá íslenskan jólamat
En við hentumst í búðir daginn áður en við komum til Íslands og keyptum allar jólagjafir sem áttu að fara á höfuðborgarsvæðið, pökkuðum þeim inn og fórum með til landsins. Það var mikið gott að losna við það verkefni.
Barnið okkar stækkar bara og stækkar og lemur og lemur. Þetta er ótrúlega skemmtileg upplifun og ég er farin að hlakka mikið til að sjá hvernig barnið muni líta út.
Annars er allt gott að frétta af okkur héðan í Danmörku og jólaundirbúningnum er lokið, en ég ætla bara að hafa þetta stutt blogg núna þar sem að ég þarf að gera ýmsa hluti í dag og kvöld því svo fljúgum við til Bretlands á morgun. Við erum farin að hlakka mikið til að fara. Ætlum að hafa það virkilega gott um jólin með Þorgerði & co.
Ég segi því bara við ykkur öll núna:
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu og hafið það sem allra best um hátíðarnar. Vonandi verð ég duglegri að blogga á nýja árinu.
Jólakveðja frá Maju og Stebba í Danmörku (Bretlandi)
Breytt lykilorđ á Barnalandi
Fólk var nefnilega að lenda í vandræðum með að komast inn á síðuna með gamla lykilorðinu og var mér bent á að það væri vegna þess að það væri íslenskur stafur í því.
Snakker du dansk?
Inga Dís systir Stebba og Pétur maðurinn hennar voru hjá okkur um helgina. Það var rosa gaman að fá þau hingað. Stoppuðu því miður allt of stutt hjá okkur en þau komu á föstudaginn og fóru heim á sunnudaginn. Við skelltum okkur í brunch í bakaríinu á laugardaginn, sem var voða gott og skelltum okkur svo til Þýskalands á eftir. Í gær fórum við svo í bíltúr til Ribe áður en þau fóru heim.
Það er ekkert kaffihús hérna í bænum nema bara í bakaríinu, en það er reyndar voða flott. Um helgar er hægt að fá brunch og svo er hægt að kaupa þarna pizzusneiðar og alls konar brauðmeti og samlokur, já og svo auðvitað bjór á krana
Já svona er að búa í sveitinni í Danmörku
En núna verð ég að fara að læra og mér þykir leiðinlegt að tilkynna ykkur það að ég mun sennilega ekki blogga aftur fyrr en ég verð búin í prófunum í fjarnáminu, en síðasta prófið verður 11. desember. Það verður bara of mikið að gera hjá mér núna þangað til prófin eru búin.
En hafið þið það bara gott þangað til næst og skemmtið ykkur vel í jólaundirbúningnum.
Bestu kveðjur frá Danmörku
Hrekkjavaka eđa ekki?
Ég sat hérna heima í mestu makindum í gær eftir að vera búin að tala við Þorgerði systir í símann í mjöööööög langan tíma (tíminn verður ekki gefinn upp). Hún var að segja mér frá því að það væri Hrekkjavaka hjá þeim og að Viktor væri að fara út að sníkja sér sælgæti um kvöldið. Hún spurði mig hvort það væri svoleiðis hér og ég sagðist ekki hafa hugmynd um það. Hún spurði mig þá hvað ég ætlaði að gera ef það kæmu krakkar að biðja um nammi eða grikk og ég sagði henni að ég myndi bara velja grikk. Við hlógum að þessu og ég pældi ekki í þessu meir. Þegar ég síðan sat hérna í makindum mínum þá hringir dyrabjallan, ég fer til dyra og er ekki eitthvað krakkakvikindi fyrir utan í grímubúning að biðja um nammi eða grikk. Ég varð eins og bjáni og sagðist ekki eiga nammi og ég vildi grikk. Haldið þið ekki að krakkakvikindið hafi sagt nei og gaf sig ekki fyrr en ég fór og reyndi að finna eitthvað í eldhússkápunum handa honum. Ha ha ha, þvílík frekja og ég lét þetta yfir mig ganga
. Ég átti svona mini snakkpoka inni í skáp og gaf honum. Síðan þeysti ég drullustressuð út í búð, ómáluð með úfið hár og keypti nammi svo ég þyrfti ekki að eiga við þessa krakka meira. En nei, það lét ekki einn krakki sjá sig það sem eftir var af deginum
. Ha ha ha, ég verð greinilega að kynna mér þessi hrekkjavökumál hérna í Danmörku betur.
En núna erum við búin að ákveða það að vera í Nottingham hjá Þorgerði, Möggunum og Viktori um jólin og áramótin. Stebbi er búinn að fá frí í vinnunni og ég keypti flugmiða í gær
. Við hlökkum mikið til að fara og ég veit að strákarnir eru mjög spenntir yfir því að fá okkur. Þetta eru fyrstu jólin þeirra án fjölskyldunnar á Íslandi svo auðvitað finnst þeim gaman að fá einhvern úr fjölskyldunni til sín. Við matgráðugu systurnar lágum í símanum í gær og ræddum um hvað yrði í matinn um jólin og hvað við yrðum að láta senda okkur frá Íslandi
. Namm, maður getur bara ekki beðið. Ef þið þekkið matinn hennar Þorgerðar systir þá skiljið þið mig. Hún er besti kokkur í heimi. Besti jólamatur sem ég hef fengið á ævi minni var einmitt hjá henni.
En alveg er þetta magnað með þessi lággjaldaflugfélög. Þegar ég var að byrja að bóka flugið þá kostaði ferðin 2.140 krónur danskar (sem eru um 25.700 ísl.) en þegar ég var búin með pöntunina þá kostaði þetta 2.726 danskar krónur (32.700 ísl.). Við þurfum að borga aukalega fyrir hverja ferðatösku sem við tökum með og svo var boðið upp á tryggingu og að fá forgang um borð í vélina og allt kostar þetta. Og ekki nóg með það heldur var aukakostnaður fyrir að borga með Visa
. Þetta eru nú meiri glæpamennirnir
. Auðvitað valdi ég ekki forgang um borð, vil nú yfirleitt vera síðust um borð. En svo má hver maður ekki vera með meira en 15 kíló af farangri, þú mátt vera með 3 ferðatöskur en þær mega ekki vera meira en 15 kíló til samans, ha ha ha. Ég verð heldur betur að púsla saman hvað ég get tekið með mér. Verð nefnilega að hafa rými fyrir ýmsar matvörur sem ég þarf að flytja með mér til Þorgerðar
.
Annars er bara nóg um að vera framundan hjá okkur. Við ætlum að reyna að fara til Þýskalands á laugardaginn og versla jólagjafir, svo fer ég í saumaklúbb á laugardagskvöldið, Stebbi fer á bjórsmökkunarkvöld í vinnunni hjá sér næsta fimmtudag, Inga Dís og Pétur koma svo um næstu helgi, svo er jólahlaðborð hjá vinnunni hans Stebba 24. nóvember, endalaus lærdómur fyrir skólann, próf í byrjun desember, jólaundirbúningur og svo ferðin til Bretlands. Já, maður mun sko ekki sitja auðum höndum fram að jólum.
Barnaland
Linkurinn að síðunni er http://www.barnaland.is/barn/67281/
Síðan heitir Ófætt barn Maju og Stebba og er hægt að finna hana undir Ó í listanum yfir heimasíðurnar á Barnalandi. Vefdagbókin og albúmið er læst en endilega sendið okkur bara póst á marianna3108@gmail.com eða stefangudm@kraftvelar.is eða hringið í okkur ef þið viljið skoða.
Linkurinn að síðunni er líka kominn hérna á þessa síðu undir undirsíður.
Veturinn er kominn í Danmörku
Stebbi fór og keypti gasofn í gær til að kynda hérna. Auðvitað getum við skrúfað frá ofnunum en það er bara svo dýrt að kynda hérna að við ætlum að reyna að spara það. Það er voða notalegt að hafa gasofninn í gangi inni í stofu.
Nú er ég komin akkúrat tuttugu vikur á leið í dag með meðgönguna. Áætlaður fæðingardagur breyttist um tvo daga í sónarnum, svo áætlaður fæðingardagur er núna 11. mars 2008
Það leit allt mjög vel út í sónarnum og vorum við mjög ánægð með það. Barnið var sofandi í fyrstu en vaknaði og byrjaði að sprikla á fullu og sáum við það allt. Rosalega var gaman að sjá hendurnar og fæturnar hreyfast og hjartað slá. Núna er ég líka farin að finna fyrir hreyfingunum. Ekki mikið en þó greinilega smá hreyfingar, það er alveg frábær upplifun. Stebbi er líka voða spenntur að fara að finna eitthvað en ætli hann verði ekki að bíða aðeins lengur.
Bjössi og Kristín fóru frá okkur í gærmorgun en voru búin að vera hérna frá því á miðvikudaginn. Það var rosalega gaman að hafa þau. Við fórum út að borða á föstudagskvöldið í Kolding og á kaffihús á eftir og röltum um miðbæinn. Strákarnir skelltu sér svo á skemmtistaðina í Vejen á eftir og fengu sér aðeins í glas á meðan við Kristín fórum heim og horfðum á tvo Air Crash Investigation þætti á National Geographic. He he, æ þetta var bara akkúrat í sjónvarpinu
Stebbi er farinn að stunda skotklúbbinn hérna í Vejen og fer núna að skjóta á mánudagskvöldum. Hann er búinn að fara tvisvar og finnst þetta voða gaman. Er búinn að vera að skjóta af skammbyssum en ætlar að fara í rifflana næst. Fínt fyrir hann að komast í eitthvað svona fyrst að allar byssurnar hans eru heima á Íslandi. Og svo eru meira að segja jeppaklúbbar hérna í Danmörku svo það er aldrei að vita nema Stebbi fari bara að jeppast hérna. Reyndar heldur hann að þeir séu aðallega í því að keyra út í drullupitti og festa sig og spila sig svo lausa. Ég held að Stebbi sé nú ekki mjög spenntur fyrir því.
Stebbi er svo að fara í eitthvað partý hjá vinnufélaga sínum næsta föstudagskvöld svo ég fer að verða æ oftar ein heima hérna. Annars er ég að fara í saumaklúbb með íslenskum konum hérna á svæðinu 3. nóvember og Linda konan hans Matta (yfirmanns Stebba) ætlar að bjóða mér í kaffi í vikunni svo það er líka að lifna yfir mínu félagslífi
Er búin að setja inn myndir af heimsókn Bjössa og Kristínar.
Stutt blogg
Er á fullu að klára tvö stór verkefni fyrir íslensku áfangana í skólanum. En ef ég skila ekki þessum verkefnum þá fæ ég ekki að fara í lokapróf. Verð að skila þeim báðum á sunnudaginn.
Bjössi vinnufélagi Stebba og Kristín konan hans ætla að heimsækja okkur í næstu viku. Bjössi var að hringja og láta vita að þau myndu koma næsta miðvikudag (eftir viku) og vera í 5 daga. Það verður rosalega gaman að fá þau í heimsókn.
Það er eitt sem mér finnst voða fyndið hérna. Þegar maður kaupir kjúkling út í búð þá getur maður valið á milli þessa að kaupa kjúkling sem er auglýstur salmonellafri kylling og svo bara kylling
Ohh ég fékk svo mikla löngun í íslenskt matarkex áðan. Maður er svo bilaður. Ég hef nú reyndar ekki verið slæm með þetta eftir að heilsan fór að lagast hjá mér en ég var mjög slæm þegar ég var sem verst til heilsunnar. Ég ætla sko að búa á Íslandi næst þegar ég verð ólétt, ef ég verð það aftur
Núna er bara vika í næsta sónar. Ég er orðin mjög spennt að fara aftur. Maginn á mér er orðinn ansi stífur, mér líður eins og ég hafi gleypt melónu í heilu lagi
Ætla að láta þetta duga að sinni. Bæ þar til næst