Ég og tölvur..........
Haldið þið að það hafi ekki komið vírus AFTUR í nýju tölvuna mína í vinnunni. Hvers á ég að gjalda? Já! vírus númer tvö á þremur dögum. Vírus á fyrsta degi og vírus á þriðja degi. Strákurinn úr tölvudeildinni hjá Vodaofone sagðis aldrei hafa séð jafn skæðan vírus á ævi sinni. He he
. Já ég og tölvur. Ég hélt reyndar að þetta væri liðin tíð. Þetta hefur gengið svo vel síðustu árin, en þetta er að taka sig upp aftur.
Annars líst mér bara rosalega vel á nýju vinnuna, fólkið og staðinn. Fór á nýliðanámskeið í gær. Við vorum tvö þar ný komin frá Símanum.
Strákarnir sem ég vinn með eru voða fínir og almennilegir og vilja allt fyrir mig gera. Ég held að mér eigi eftir að líða voða vel þarna. Allir sem ég tala við þarna eru ánægðir með móralinn í fyrirtækinu.
Ég og Eyrún vinkona hittumst á Pizza Hut í gær eftir vinnu, bara svona til að hittast aðeins. En það endaði með því að við sátum í 4 klukkutíma og spjölluðum. En það var voða gaman. Alltaf gaman að spjalla við Eyrúnu, hún er svo hress.
Ég keypti fyrsta jólaskrautið í ár í gær. Ég ætlaði nú ekkert að kaupa neitt jólaskraut því við eigum nóg af svoleiðis dóti. En ég sá þetta og féll alveg fyrir því og keypti það bara. Þetta eru svona eins og greinalengjur með rauðum kúlum og glærum og hvítum steinum. Æ, þið sjáið það bara hjá mér um jólin. Þegar ég var á kassanum að borga þá sagði einhver maður fyrir aftan mig. Hva! Eru komin jól hjá þér? Dö
JÁ. Ég spurði hann nú bara hvort hann væri ekki búinn að taka eftir öllu jólaskrautinu sem væri til sölu þarna.
Já það eru sko að koma jól hjá mér. Jólahugurinn kraumar þarna undir niðri og bíður þess að ég verði búin í skólanum og geti farið að huga að jólunum. Ég er nú aðeins byrjuð, keypti jólapiparkökur um daginn og er farin að kaupa malt og appelsín.
En nú ætla ég að fara að læra. Er að fara í enskupróf á mánudaginn.
Sunna var að biðja mig um að setja myndir inn á síðuna. Ég geri það einhvern tímann þegar ég má vera að því. Ja, kannski skelli ég nokkrum inn í dag. Ég sé til.