Aðalvalmynd

Auglýsing

James Bond og Herra Ísland

26. nóvember 2006 klukkan 19:42
Ég fór á James Bond í gærkvöldi með Sóley og Adda vini hennar. Ég verð nú að segja það að ég varð fyrir miklum vonbrigðum.Fýldur Ég held að þetta sé slakast Bond mynd sem ég hef séð.
Það gerðist mjög lítið spennandi í myndinni. Mjög fá hasaratriði en meira bara af einhverjum rólegheitum. Svo fannst mér Bond bara vera með einhvern vælugang. Ég er nú dálítill Bond aðdáandi og ég vil ekki sjá atriði eins og er í nýju myndinni í Bond mynd. James Bond er berháttaður, troðið ofan í eldhússtól sem vantar setuna í og laminn í punginn, og svo öskrar hann og vælir af sársauka. Þetta var bara niðurlægjandi atriði og ég vil ekki sjá James Bond niðurlægðan. Öskrandi Hann er töffari og á bara að vera það áfram, og ég vil ekkert sjá hann niðurlægðan og vælandi eins og einhver kelling. Svo var hann ástfanginn í þokkabót. Þvílík vitleysa.
Ég var líka ekki ánægð með nýja leikarann. Kannski af því að ég varð fyrir vonbrigðum með myndina. Ég gef honum alveg séns í annarri mynd ef það verður eitthvað að gerast í henni. En mér finnst hann bara ekki nógu sætur. Mér finnst Brosnan vera flottasti Bondinn og hefði bara viljað hafa hann áfram.

Við Stebbi horfðum á Herra Ísland á fimmtudagskvöldið. Hannes félagi okkar var að keppa. Hann gaf Stebba boðsmiða á kvöldið en Stebbi nennti ekki að fara, svo við horfðum bara á þetta í sjónvarpinu. Það hefði nú ekkert verið leiðinlegt að vera á staðnum. Hann komst í sex manna úrslit og var valinn Next gaurinn. Flott hjá Hannesi. Hann er líka voða sætur og skemmtilegur strákur. Einnig var Annel, besti vinur Heiðars hennar Ingu Dísar og fyrrverandi kærastinn hennar Ólafar að keppa. Hann var valinn Zirh herrann en komst ekki áfram í úrslit.

Stebbi er á Selfossi núna og er búinn að vera alla helgina þar. Hann og pabbi hans eru að smíða milliloft í bílskúrinn hjá tengdó svo að við getum geymt dótið okkar þar á meðan við erum úti. Við erum ekki búin að ákveða hvort við ætlum að taka búslóðina með eða ekki, en þó maður taki hana með þá er alltaf slatti af dóti sem maður tekur ekki. Eins og til dæmis geymsludót og bækur og eitthvað fleira.

Ég og Sóley fórum í góðan göngutúr í Heiðmörk í gærmorgun. Það er svo fallegt þar. Yndislegt að labba þar í góða veðrinu.
Núna er kennslan búin í skólanum og prófin byrja á miðvikudaginn. Það er reyndar kennsla á mánudag og þriðjudag en það er frjáls mæting. Ég þarf ekkert að mæta á mánudaginn en ég þarf að fara í stafsetningapróf á þriðjudaginn sem ég átti eftir að taka. Svo eru það bara prófin. Það er eins gott að vera duglegur að læra þessa dagana.

Nýtt heimili og dekur

23. nóvember 2006 klukkan 02:31

Langaði bara til að henda inn smá færslu þó ég hafi ekkert að segja.
Jú......... það er ein frétt. Við erum búin að fá íbúð til að leigja frá þeim tíma sem við flytjum út úr íbúðinni okkar og þangað til við förum út. Fólkið sem er að kaupa íbúðina af okkur leigir íbúð í Álftamýri og við töluðum bara við eigandann og hann ætlar að leigja okkur íbúðina. Þannig að þetta verða bara íbúðaskipti. Mjög hentugt. Þá þarf maður líka ekki að hugsa meira út í það.
Annars er það bara vinna, skóli, sofa þessa dagana. Prófin byrja svo í næstu viku. Annars eru búin að vera endalaus próf og ritgerðasmíði alla önnina.
Ég er svo búin að panta mér tíma í dekur þegar prófin verða búin. Ég fer í klippingu og litun (það er svo sem fastur liður) og svo pantaði ég mér, sama dag, litun og plokkun og lúxus andlitsbað í einn og hálfan tíma. Umm..........hvað það verður gott. Fínt að dekra vel við sig eftir prófin. Brosandi Er að hugsa um að skella mér í nudd í Bláa lónið líka. Svalur
Annars gengur lífið bara vel hjá Vodafone og fyrir utan Vodafone. Tölvan hefur alveg haldið sig á mottunni og strákarnir eru svo góðir við mig, alltaf að hjálpa mér. Það er bara rosa fínt fólk að vinna þarna. Mér líst voða vel á þetta. Ég fer svo að vinna allan daginn þegar prófin verða búin, síðan ætlum við (ég og yfirmarður minn) að enduskoða vinnutímann minn eftir áramót. Fer eftir því hvernig ég verð í skólanum.
Jæja, ætla að skella mér í gott bað og hafa það næs. Svalur

Vinabandið rokkar

18. nóvember 2006 klukkan 17:41

Best að henda inn einni blogg færslu.
Það er nú reyndar voða lítið að gerast þessa dagana. Um síðustu helgi fór ég í fjölskyldukaffi til ömmu á elliheimilinu. Það er þannig að fjölskyldur heimilisfólksins koma með kökur og brauð og er öllu skellt í hlaðborð. Síðan sitja allir í stórum sal, hver fjölskylda saman við borð og snæða og hlusta á vinabandið spila. En það er samansett af hjónum sem búa á elliheimilinu, kallinn spilar á harmonikku og konan hans á trommu. Já.....ég sagði trommu. He he. Þetta er frekar fyndið. Svo á allt liðið að syngja en það eru nú alltaf frekar dræmar undirtektir. En þetta vonandi lífgar aðeins upp á lífið hjá gamla fólkinu, sem hefur ekki mikið við að hafa.
Ég og Sóley vinkona fórum síðan á Sykurmola tónleikana í gærkvöldi með Jónu Berglindi frænku Sóleyjar og Axel vini hennar. Þetta voru rosa góðir tónleikar. Alveg frábærir. Hljómsveitin Múm og pönkhljómsveitin Rass, eins og þeir kynna sig alltaf, voru að hita upp. Mér fannst sko ekki leiðinlegt frekar en vanalega að sjá Rass spila. Mér finnst þeir alveg frábærir. Ég vissi ekki að þeir yrðu að spila, svo þetta var mjög skemmtilegur bónus við Sykurmolana. Þeir byrjuðu á að spila fyrsta lagið bara með 2 kassagíturum og Óttar Proppé söng og ekkert sást til trommu- né bassaleikarans. Svo byrjaði annað lagið unplugged líka, og ég var farin að halda að þetta yrði þannig allan tímann og leist nú ekki á en svo birtust hinir kapparnir í miðju lagi og rokkið byrjaði. Þetta var alveg frábært. Ottar Proppé klikkar sko ekki á því.
Við seldum íbúðina okkar í vikunni. Erum sem sagt búin að skrifa undir og eigum að afhenda 25. janúar. Fínt að þurfa ekki að flytja fyrir jólin. Hefði ekki hentað voða vel því Þorgerður systir og co. ætla að gista hérna þegar þau koma til landsins um jólin.
En nú finnst manni Danmörk bara nálgast mun hraðar og nú er þetta orðið raunverulegra. Nú er ekkert sem stoppar okkur að fara. Stefnan er sett á að fara í maí. Stebbi er að reyna að ákveða hvað hann ætlar að gera við jeppann þegar við förum út. Hann vill ekki selja hann en það er ekki gott að láta bíla standa ónotaða í langan tíma. Svo hann er að reyna að ákveða sig.
Við förum sennilega með norrænu á Subarunum með tjaldvagninn. Ætlum að reyna að fara snemma í maí áður en sumarverðið skellur á. Það er helmingi dýrara að fara eftir 15. maí með norrænu.
Við ætlum að fara með tjaldvagninn því við ætlum að nota tímann á meðan við búum úti til að ferðast um Evrópu. Ohh......... nú er ég bara farin að hlakka til.
Úff........ ég leit á hitamælinn þegar ég fór á fætur í morgun og það er 14 stiga frost úti. Pínulítið kalt. Annars er þetta ekkert miðað við hjá Kate vinkonu minni í Moskvu. Þar fer frostið niður í 30 gráður á veturna en á sumrin fer hitinn líka upp í 30 plús. Ekki slæmt það.
Ég fékk póstkort frá Marianne vinkonu minni frá Sviss um daginn. Við kynntumst í enskuskólanum í fyrra og hún fór aftur í enskuskóla núna í haust í Bretlandi. En það er svo fyndið með hana að ég skil aldrei skriftina hennar. Ég skil eiginlega bara rúmlega helminginn sem hún skrifar mér. Og það besta er að ég skil hana heldur varla þegar hún talar ensku, he he. Hún talar með svo skrítnum hreim.
Ég hef nú ekkert meira að segja núna. Lífið snýst bara um að vinna, læra, borða og sofa. Er til dæmis að fara að læra undir enskupróf núna.
Hafið það bara gott um helgina elskurnar mínar.Brosandi

Vírus og bruni

09. nóvember 2006 klukkan 23:39
Jæja, er ekki kominn tími á nýja bloggfærslu? Jú ég held það nú.
Ég ætlaði að blogga í fyrrakvöld en þá komst ég ekki inn á bloggið. Ég ætlaði að flytja ykkur nýjustu fréttirnar úr nágrenninu.
Það kveiknaði nefnilega í blokkinni hjá okkur. Þið hafið nú örugglega séð það í fréttunum og blöðunum. Það eru þrír stigagangar í blokkarröðinni og við erum í öðrum endanum en það kveiknaði í íbúð í hinum endanum. Ég var inni í herbergi að læra og Stebbi var ekki heima. Ég er svo óforvitin að ég fór ekkert að líta í kringum mig þó ég hafi heyrt í sírenum og ægilegan hávaða fyrir utan. Það voru líka allir gluggar lokaðir hjá mér því það var svo kalt úti. Svo ég fann enga brunalykt. Stebbi hringdi síðan í mig og spurði í hvaða íbúð hefði kveiknað í. Hann las það á visir.is. Ég kom alveg af fjöllum. HA, ER KVEIKNAÐ Í? Ég kíkti út um gluggann en sá ekkert og stökk þá fram í stofu og kíkti út um gluggann þar og sá slökkviliðsbílana á planinu við hliðina á blokkinni. Ég sá að nágrannakonan mín var að koma inn og ég stökk á hana og yfirheyrði hana. Hún sagði mér alla sólarsöguna því hún varð vör við þetta strax og varð vitni að þessu öllu. Hún sagði mér að nágrannar okkar, hjón á miðjum aldri, hefðu brunnið mjög illa og að sjúkraflutningsmennirnir hafi verið að gera lífgunartilraunir á konunni. Hún sagðist ekki getað ímyndað sér að þau myndu lifa þetta af því þau voru svo illa farin. Konan fannst fyrir framan stofusófann og maðurinn inni á baði. En eldsupptökin voru í sófanum. Ég labbaði síðan út til að kíkja á þetta og þá voru fullt af brunabílum, sjúkrabílum og löggubílum fyrir utan. Og strætó, þar sem fólkið úr blokkinni gat fengið áfallahjálp. Ég fékk nú bara mikið sjokk við að sjá alla þessa bíla, mennina og allt umstangið. Úff, ég hefði sko ekki viljað sjá meira eins og nágrannakona mín.
En blokkin mín stóð sem sagt í ljósum logum og nágrannar mínir liggja þungt haldnir á gjörgæslu og ég tók ekki eftir neinu. Skömmustulegur

Já, og svo er það nýjasta vírussagan. Ég fékk auðvitað annan vírus í vinnutölvuna mína. Þann ÞRIÐJA. Tölvudeildin straujaði hana enn og aftur í vikunni.
Það er sem sagt búið að strauja tölvuna þrisvar á einni viku, ég er komin með viðurnefnið Maja vírus í vinnunni og ég þekki orðið helminginn af strákunum í tölvudeildinni. Svalur. Það er nú reyndar eitthvað að bögga mig ennþá í tölvunni. Yfirmaður minn var að skoða hana og hann heldur að það sé ennþá eitthvað vírusdæmi að trufla mig. Fýldur

Fleiri myndir

05. nóvember 2006 klukkan 07:20
Ég setti inn nokkrar myndir til viðbótar.

Myndir

04. nóvember 2006 klukkan 17:23
Ég setti inn nokkrar myndir af fjölskyldunni. Ég setti inn myndir af öllum systrum mínum og öllum börnunum þeirra. Þetta eru reyndar misgamlar myndir. Ég verð greinilega að vera dugleg að taka myndir af fjölskyldunni um jólin svo ég geti uppfært gamlar myndir. Djamm myndirnar koma seinna Sunna mín.

Ég og tölvur..........

04. nóvember 2006 klukkan 16:06

Haldið þið að það hafi ekki komið vírus AFTUR í nýju tölvuna mína í vinnunni. Hvers á ég að gjalda? Já! vírus númer tvö á þremur dögum. Vírus á fyrsta degi og vírus á þriðja degi. Strákurinn úr tölvudeildinni hjá Vodaofone sagðis aldrei hafa séð jafn skæðan vírus á ævi sinni. He he Skömmustulegur. Já ég og tölvur. Ég hélt reyndar að þetta væri liðin tíð. Þetta hefur gengið svo vel síðustu árin, en þetta er að taka sig upp aftur.
Annars líst mér bara rosalega vel á nýju vinnuna, fólkið og staðinn. Fór á nýliðanámskeið í gær. Við vorum tvö þar ný komin frá Símanum. Glottandi Strákarnir sem ég vinn með eru voða fínir og almennilegir og vilja allt fyrir mig gera. Ég held að mér eigi eftir að líða voða vel þarna. Allir sem ég tala við þarna eru ánægðir með móralinn í fyrirtækinu.
Ég og Eyrún vinkona hittumst á Pizza Hut í gær eftir vinnu, bara svona til að hittast aðeins. En það endaði með því að við sátum í 4 klukkutíma og spjölluðum. En það var voða gaman. Alltaf gaman að spjalla við Eyrúnu, hún er svo hress.
Ég keypti fyrsta jólaskrautið í ár í gær. Ég ætlaði nú ekkert að kaupa neitt jólaskraut því við eigum nóg af svoleiðis dóti. En ég sá þetta og féll alveg fyrir því og keypti það bara. Þetta eru svona eins og greinalengjur með rauðum kúlum og glærum og hvítum steinum. Æ, þið sjáið það bara hjá mér um jólin. Þegar ég var á kassanum að borga þá sagði einhver maður fyrir aftan mig. Hva! Eru komin jól hjá þér? Dö Hissa JÁ. Ég spurði hann nú bara hvort hann væri ekki búinn að taka eftir öllu jólaskrautinu sem væri til sölu þarna.
Já það eru sko að koma jól hjá mér. Jólahugurinn kraumar þarna undir niðri og bíður þess að ég verði búin í skólanum og geti farið að huga að jólunum. Ég er nú aðeins byrjuð, keypti jólapiparkökur um daginn og er farin að kaupa malt og appelsín. Brosandi En nú ætla ég að fara að læra. Er að fara í enskupróf á mánudaginn.
Sunna var að biðja mig um að setja myndir inn á síðuna. Ég geri það einhvern tímann þegar ég má vera að því. Ja, kannski skelli ég nokkrum inn í dag. Ég sé til.

Stutt blogg

02. nóvember 2006 klukkan 02:26
Bloggið verður mjög stutt í dag því ég þarf að læra fyrir spænskupróf. Er ekki búin að læra neitt fyrir það og það er í fyrramálið klukkan 8:25. Munnlegt próf í þokkabót. Verður tekið til heiðurs Sunnu, sem er búin með marga spænskuáfanga en getur ekki komið einu spænsku orði klakklaust út úr sér. He he he. Greyið.  Bara ef hún væri nú jafn gáfuð og vel upplýst og stóra frænka sína...........ohhhhh.........hvað hún væri þá heppin. Hlæjandi
Fyrsti dagurinn hjá Vodafone var í dag. Fékk nýtt símanúmer og nýtt netfang sem ég verð að senda á alla. Síðan fékk ég að velja mér GSM síma, og auðvitað valdi ég eins flottan síma og ég gat. Einhver Nokia samlokusími með myndavél. Síðan fékk ég þessa fínu fartölvu. En starfsferill minn og tölvunnar byrjaði ekki á betri leið en það að það kom strax vírus í hana Skömmustulegur og það var ekki nokkur möguleiki að koma henni í lag. Það voru tveir menn að vinna í því í allan dag og það endaði með því að tölvudeildin tók hana og ætlaði að vinna í henni í kvöld og nótt. He he he. Fall er fararheill.
Jæja, best að fara að læra fyrir prófið. Adiós.

Hætt hjá Símanum

01. nóvember 2006 klukkan 03:07
Jæja, þá er ég hætt að vinna hjá Símanum, eftir 11 ára starfsaldur. Reynar með smá hléum á meðan ég var í skólanum. Á morgun er svo fyrsti dagurinn minn hjá Vodafone. Þótt furðulegt sé þá finnst mér ekkert eins og ég hafi verið að hætta. Ég á eftir að vera í svo miklul sambandi við marga félaga mína hjá Símanum í gegnum nýju vinnuna svo ég finn ekki eins mikið fyrir því að ég sé að missa samband við fólkið.  Sem er mjög gott því þau eru það sem ég á eftir að sakna mest.Brosandi Ég ætlaði einmitt að hafa kveðjukaffi svona bara fyrir alla sem vildu koma og kveðja mig en sá að það er ansi mikill fjöldi af fólki sem ég þekki hjá fyrirtækinu eftir allan þennan tíma. Ég ákvað því að skera það niður í bara svona þá sem ég þekki best og vildi endilega kveðja. Úff........það leit heldur ekki vel út. Því þegar ég var búin að tína þá út þá stóð talan í 102. Hissa Ég sá fram á að ég stæði í eldhúsinu við bakstur í marga daga eða yrði að borga svimandi upphæð í bakaríi. Svo það féll um sjálft sig. Svo nú er ég búin að ákveða að halda bara partý fyrir bestu vini mína í fyrirtækinu og þá stendur talan í rúmlega 40. Við stelpurnar fórum síðan út að borða í hádeginu í dag.
Jæja, svo er nýji sumarbústaðurinn okkar kominn upp í sveit. Við erum sem sagt ný búin að kaupa lítinn sumarbústað. Stebbi og pabbi hans fóru í gærkvöldi til að flytja hann upp í Grímsnes. Það þurfti að gera í lögreglufylgd í nótt. Bústaðurinn var skilinn eftir hjá Jóni í Kringlu og verður fluttur upp í landið okkar þegar búið verður að gera klárt fyrir hann. Þetta land er stoltið hans Stebba, 13 hektarar og Stebbi er meira að segja búinn að eignast tvo traktora sem notaðir eru á landinu.Glottandi
Fjölskyldan eignaðist þetta land á þann hátt að Stebbi og pabbi hans girtu alls 13 lönd og bjuggu til vegi fyrir þau og fengu að launum eitt stærsta landið fyrir. Við eigum þetta með foreldrum hans og tveimur systrum og er þetta ætlað til sumarbústaðarnota. Það er alltaf verið að  vinna í því annað slagið að gera þetta flott til að vera þarna. Bústaðurinn sem við keyptum núna er bara 25 fermetrar og svo á að byggja stærri bústað seinna. Í lögum segir að það megi hafa allt að 200 fermetra bústað í hverju landi og 25 fermetra gestahús. Þess vegna var ekki keyptur stærri bústaður núna. Ef hann hefði verið stærri þá hefðum við ekki mátt byggja annað hús þarna. Skrítin lög. En það er nú hjólhýsi líka í landinu sem við keyptum og svo erum við með tjaldvagn og Inga Dís og Pétur með fellihýsi svo þetta dugar nú alveg í bili.

Klukkan

Niðurteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...