Aðalvalmynd

Auglýsing

I Danmark er dejlig

29. maí 2007 klukkan 17:35
Jæja loksins var timi til ad leita ad netkaffihusi. En tad er sem sagt ekkert netkaffihus i Vejen, svo vid verdum ad fara til Kolding til ad finna svoleidis. Vid erum ekki nema 15 minutur ad keyra til Kolding. Ferdalagid hefur gengid mjog vel. Vid erum buin ad vera a kafi ad kaupa husgogn og koma okkur fyrir. Var einmitt ad skoda stoduna a visa reikningunum i einkabankanum og tad var ekki fogur sjon. He he. Skömmustulegur
Ibudin er agæt en to ekki mikid af skapaplassi. Svo er tvottahusid otrulega tæknilegt og flott fyrir utan tad ad tvottavelarnar hafa sjalfstædan vilja. Tad er upp og ofan hvad tær eru lengi ad tvo, madur veit aldrei hvada tima tad tekur fyrr en madur er buinn ad setja tær af stad. Tetta er svolitid vont tvi madur hefur bara akvedinn tima til ad tvo.
Hverfid sem vid búum i er fint fyrir utan nalægdina vid kirkjuna sem veldur tvi ad madur er vakinn eldsnemma á morgnana med glamrinu í kirkjuklukkunum. Vid vorum til dæmis vakin klukkan sjo í morgun af tessum klukkufjanda, og tetta er ekki einu sinni skemmtileg hringing í tokkabót. Arrgggg Öskrandi.
En vid erum med frábært útsýni tví vid erum á tridju hæd.
Vid erum búin ad fá ný nofn hérna í Danmorku, M Borgisdottir og S Guomundsson. Svo ef tid ætlid ad senda okkur póst munid tá ad nota tessi nofn Brosandi.

Vid leggjum af stad í ferdalagid okkar á morgun. JIBBÝ Hlæjandi.
Okkur hlakkar mikid til tess. Vid byrjum á Hollandi, svo Belgíu, Lúxemborg og svo Frakkland. Erum svo ad spá í ad keyra Móseldalinn í Týskalandi í bakaleidinni. Vid munum hitta Mottu, Hermann og krakkana teirra i Frakklandi, á Normandí strondinni og vera med teim í einhverja daga.

Maggi frændi og Emil frændi voru hjá okkur í eina viku. Teir fóru heim í gær. Tad var mjog gaman hjá okkur. Vid fórum í Go Kart, til Týskalands og margt fleira skemmtilegt. Eftirminnilegast var samt tegar vid fórum á strondina á Rømø. Vid fundum plastfleka og Stebbi dró okkur um strondina á flekanum. Fyndnast var svo tegar tad kom stór scheffer hundur og elti Magga greyid og Stebbi lék sér ad tví ad keyra hægt svo hundurinn kæmi nær honum. HA HA HA. Tetta var brjálædislega fyndid. Stebbi var farinn ad slefa af hlátri og ég meig næstum í mig.

Jæja, verd ad skrifa meira seinna. Tad eru komnar trumur og eldingar úti og ég ætla út og njóta tess.

Verid endilega dugleg ad skrifa kvedjur til okkar í athugasemdir. Glottandi

Norræna rokkar!

14. maí 2007 klukkan 16:20
Hæ hæ.
Við komum til Álaborgar á laugardaginn klukkan 10:30 að dönskum tíma en 8:30 að íslenskum tíma eftir áhugaverða ferð með Norrænu. Hrafnistan í Bergen var greinilega með í ferð og Færeyingar greinilega í fjölskylduferð. Við stoppuðum í Færeyjum í 7 tíma á fimmtudaginn og í Bergen í 3 tíma á föstudaginn. Það var mjög gaman að sjá Færeyjar. Við fórum út að borða þar og fengum okkur pizzu og gengum svo um bæinn og tókum myndir. Stebbi keypti sér svo grindhvalahníf en hann var búinn að tala mikið um það. Það kom aðallega fjölskyldufólk með börn um borð í Færeyjum. Já og svo auðvitað vinir okkar Stebba, 2 ungir strákar sem voru bara að sigla með Norrænu til að detta í það og skemmta sér. Þeir voru frekar skrautlegir og frekar drukknir allan tímann. Það var mjög gaman að fylgjast með þeim. Í Bergen fengum við okkur að borða til að losna við kvöldmatinn um borð sem var í fyrsta lagi ekki ódýr og í öðru lagi ekki spennandi. Við náðum nú bara að labba niður í bæ, borða og labba til baka því við gátum bara verið í 2 tíma í landi. Í Bergen fylltist síðan skipið af gömlu fólki.
Það er tveir barir um borð í Norrænu. Víking barinn og Naust. Naust barinn var fínn, þar var píanóleikari að spila og syngja á kvöldin. Við náðum meira að segja að horfa upp á vandræði þar þegar einhverjum útlendingi var hent út af barnum fyrir að vera að abbast upp á einhverja þjóðverja á barnum. Það var mjög fyndið.
Við fórum svo aðallega á Víking barinn til að hlægja að hljómsveitinni sem var mjög fyndin. Þeir spiluðu þarna öll kvöld og það voru aðallega þekkt lög sem skellt var í dansbúning svo ellismellirnir gætu dansað. Þetta voru 3 gaurar á aldrinum 50-60 ára, allir með sítt hár og hafa kannski verið voða flottir töffarar hérna um 1960 en hafa nú alveg misst sjarmann sinn núna. Ja, gömlu kellingunum fannst þeir kannski vera voða flottir Hlæjandi. Það besta var svo þegar söngvarinn breytti röddinni í svaka ráma rödd svona í ákveðnum lögum. Þá lágum við Stebbi í gólfinu af hlátri. Þetta minnti mig á þegar Rúnar Þór var að spila í kjallaranum á Akureyri í gamla daga. Já, þetta var svona það helsta sem hægt var að gera um borð, fara á pöbbarölt og hlægja að hljómsveitinni. Jú, við fórum líka í bíó einu sinni á Wild Hogs, hún var bara helvíti fín.

Við erum svo búin að vera í góðu yfirlæti hjá Jóa og Unni í Álaborg. Fengum þetta líka fína Ný Sjálenska lambalæri að borða á laugardaginn og rosa góðan kjúklingarétt í gær og svo er Unnur að elda einhvern girnilegan austurlenskan lambapottrétt núna. Það er mjög gott að vera hérna hjá þeim.

En við fáum íbúðina okkar afhenta á morgun klukkan 12. Við ætlum að leggja af stað í fyrramálið til Vejen. Við erum sennilega búin að finna okkur sófasett, eldhúsborð og stóla og ísskáp sem við ætlum að kaupa þegar við komum til Vejen. Við þurfum reyndar að panta sófasettið og við fáum það ekki fyrr en eftir 6 virka daga. Sem sagt um miðja næstu viku, en það verður ágætt því þá verða Emil og Maggi komnir og þeir geta þá borið sófasettið upp með Stebba.

Ég ætla að láta þetta duga í bili. Ég reyni svo að finna mér netkaffihús þar sem ég get orðið fastagestur á næstunni og bloggað eitthvað.

Erum komin á Egilsstaði

09. maí 2007 klukkan 00:49

Núna erum við komin á Egilsstaði eftir dekurdaga á Norðurlandinu. Við vorum varla komin inn fyrir dyrnar hjá mömmu og pabba þegar það var kominn bjór og Amarulla á borðið. Daginn eftir voru svo heimabakaðar bollur í morgunmat, vöfflur í kaffinu og kjöt í karrí í kvöldmat og bjór og Amarulla um kvöldið eins og ég var búin að segja ykkur frá. Í gær voru það síðan pönnukökur í kaffinu og lambalæri hjá Erlu og Smára með piparostarjómasósu og alls kyns gumsi og kökum í eftirmat. Við kíktum svo á Obbu og Þórólf á mánudagskvöldið og Þórólfur hellti í okkur bjór. Mér finnst verst að ég náði ekki að heimsækja fleiri á Akureyri áður en við fórum. Ég hefði viljað heimsækja nokkrar vinkonur mínar þar og kveðja þær Fýldur.

Við gistum hjá Víði bróður hans Stebba hérna á Egilsstöðum í nótt. Hann er að vinna hérna á Egilsstöðum en býr samt í Reykjavík. Hann er með þetta fína stóra einbýlishús hérna til að brúka. Við erum með sér herbergi með hjónarúmi í svo það ætti að fara vel um okkur í nótt. Við vorum komin hingað klukkan korter yfir sjö í kvöld og þá hittum við Víðir og borðuðum með honum. Síðan fór hann með okkur í bíltúr á Reyðarfjörð til að sýna okkur álverið. Það var mjög gaman að sjá það og það er líka svo fallegt á leiðinni þangað. Svo rúntaði hann með okkur um Egilsstaði og sýndi okkur hina og þessa staði. Hann er uppalinn hérna á Egilsstöðum svo hann þekkir þetta allt. Svo fengum við auðvitað bjór þegar við komum heim Brosandi.

En þetta verður síðasta bloggfærslan mín á Íslandi. Svo er það bara Norræna á morgun og svo ætla ég að fá að henda inn bloggfærslu hjá Jóa og Unni í Danmörku. Við verðum komin þangað á laugardaginn.

Við biðjum bara að heilsa ykkur þangað til.Hlæjandi

Ferðalagið er hafið!

06. maí 2007 klukkan 22:03
Jæja þá er ferðalag okkar til Danmerkur hafið. Við erum komin norður yfir heiðar til mömmu og pabba. Við keyrðum frá Reykjavík í gær með 4,8 tonn í farteskinu, þ.e.a.s. jeppinn stútfullur af dóti með tjaldvagninn aftan í með rúminu ofan á tjaldvagninum og subarúinn stútfullur af dóti líka. Við mældum bílana á vigtinni við Hvalfjarðargöngin og mældist jepinn 2.500 kíló, tjaldvagninn 500 kíló og subarúinn 1.800 kíló sem gera 4.800 kíló.Við verðum hérna þangað til á þriðjudaginn en þá förum við á Egilsstaði og gistum hjá Víði bróður hans Stebba eina nótt. Síðan siglum við með Norrænu á miðvikudaginn klukkan 17:00. Hlæjandi

Ferðin til Edinborgar um daginn var mjög fín. Við fórum 19 - 22 apríl með Kraftvélum í árshátiðarferð. Við skoðuðum kastalann, fórum í wisky verksmiðju, fórum í útsýnistúr með tveggja hæða strætó og þvældumst um miðbæinn. Útsýnisferðin var mjög þægileg svona í þynnkunni. Sátum á efri hæðinni sem var opin. Ég missti mig svo aðeins í jólabúð sem var nánast við hliðina á hótelinu. Keypti jólaskraut fyrir 26.000 krónur Skömmustulegur he he. Æ, þetta var svo rosalega krúttlegt jólaskraut, ég sé aldrei svona flott skraut hérna á Íslandi. Jólaskrautið og slatti af skartgripum var nánast það eina sem ég keypti, enda var ég ekki að fara að versla neitt. Ég set myndir frá Edinborgarferðinni inn þegar ég get. Það gengur nú alltaf svo hægt að setja inn myndir hérna svo það gæti verið að þær kæmu ekki inn fyrr en í byrjun júlí þegar ég verð komin með internetaðgang heima í Danmörku.

Það er sko búið að vera nóg að gera hjá okkur, síðan við komum frá Edinborg, í skólanum og út af flutningunum. Einnig í að hitta vini og vandamenn. Ég og Sóley vinkona hittumst heima hjá henni þar síðasta föstudag og löbbuðum niður á Reykjavík Pizza Company. Namm, það eru rosa góðar pizzur þar. Ég hætti líka að vinna hjá Vodafone sama dag. Síðan fórum við Stebbi í mat hjá Bigga og Ingibjörgu á laugardeginum og fengum þennan líka dýrindis kjúklingarétt. Alltaf jafn góður matur hjá þeim. Á mánudaginn fórum við síðan í mat til Lindu og Þórs í grillað lambalæri, og það var nú líka gott eins og alltaf hjá þeim. Á þriðjudaginn héldum við síðan kveðjukaffi fyrir vini og vandamenn með tilheyrandi kaffiveitingum. Auðvitað var allt of mikið af mat eins og alltaf þegar ég sé um veitingarnar Skömmustulegur. Ég fór síðan að kveðja ömmu á fimmtudaginn en hún rak mig hálfpartinn út. Já........sko........hún amma mín er frekar sérstök kona. Þegar ég kom til hennar þá var hún að koma af klósettinu og var að fara í hádegismat. Hún var fyrir utan herbergið sitt og starfsmaðurinn á elliheimilinu keyrði hana bara aftur inn í herbergið hennar (hún er sko í hjólastól) svo hún gæti kvatt mig. Hún var mjög utan við sig og óþolinmóð að sjá og þegar ég var búin að vera inni hjá henni í eina mínútu þá leit hún á úrið sitt og sagði: "Jæja, ætli það sé ekki best að þú keyrir mig fram núna, það eru fimm mínútur í matinn". Dö!Hissa. Já hún hafði sko meiri áhyggjur af að hakka í sig mat heldur en að eyða smá tíma með barnabarninu sem var að fara að flytja til Danmerkur. Og hún sem að er nú ekki svo hrifin af matnum þarna Öskrandi. En svo hringdi hún auðvitað í mig um kvöldið því hún hafði gleymt að segja mér fréttir. Hi hi. Hún hringdi líka í mig áðan til að fá að vita hvar ég hefði keypt sjampóið sem ég keypti alltaf fyrir hana........... Hún er komin með nýtt fórnarlamb í sendiferðirnar Fýldur. Aumingja kærastan hans Árna frænda, ég samhryggist henni innilega Gráta.

Síðasta prófið mitt var á föstudaginn og það var í dönsku. Ekki veitir af að æfa sig Brosandi. Síðan fór ég í smá dekur, í litun og plokkun og klippingu. Svo var bara þrusað heim og byrjað að pakka, við kláruðum síðan að pakka um miðjan dag í gær og lögðum af stað norður klukkan korter yfir sex og vorum komin klukkan korter yfir ellefu, sem er nú bara fínn tími miðað við allt draslið sem við fluttum norður yfir heiðar. Við erum búin að liggja í leti í allan dag og borða þess á milli. Pabbi bakaði bollur í morgun/hádegismat, mamma bakaði svo vöfflur í kaffinu og svo var kjöt í karrí í kvöldmatinn, en það er einn uppáhalds maturinn minn. Ég panta alltaf svoleiðis þegar ég kem til mömmu og pabba Ullandi. Svo er matur hjá Erlu og Smára á morgun og ætla þau að gefa okkur lambalæri. Fínt að borða nóg af lambi áður en maður fer í svínaríkið Danmörk. En mikið er nú gott að geta slappað af eftir þessa törn sem er búin að vera á okkur síðustu vikur.

Ég ætla að reyna að henda inn einni bloggfærslu á þriðjudaginn áður en ég legg af stað austur og svo veit ég ekkert hvenær ég get bloggað aftur. Við komum til Danmerkur klukkan 12:00 á hádegi laugardaginn 12. maí og við fáum íbúðina okkar 15. maí. Við gistum hjá Jóa og Unni vinafólki okkar í Álaborg þangað til við fáum íbúðina okkar. Ég hlýt að geta hent inn bloggfærslu á meðan að við verðum hjá þeim.
En annars segi ég bara bless þangað til næst og hafið það nú öll sömul gott.

Klukkan

Niðurteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...